Göngugarpar

Fyrir fólk á öllum aldri.

Dagskrá







Kæru göngufélagar. Þá eru hinar vinsælu miðvikudagsgöngur hafnar á ný.

 Fyrsta gangan verður í kvöld 11 apríl.  Mætingartími verður klukkan 19:00

 ýmist við Fjarðarkaup eða Össur. Til að byrja með verður farið að mestu leiti eftir bókinni

 25 gönguleiðir á Reykjavíkursvæðinu en svo verður samin dagskrá og þá farið meira út fyrir bæinn.

Þess má geta að hinn 12 maí næstkomandi eru 10 ár síðan gönguhópurinn var stofnaður

 og enn eru nokkrir stofnfélagar að ganga á fullu.

  Enda er að koma betur og betur í ljós hve ganga er mikil heilsubót.

ÁRIÐ 2012. …………….

.

Sunnudagur 29. apríl  Stafnnes - Básendar - Hafnir.

Hittumst við Fjarðarkaup kl. 10:00.

Ekið út á Reykjanes að Höfnum. Bílar skildir eftir, ekið að Stafnnesi

og gengið þaðan til baka. LÖNG FERÐ

…………………………………………………………………

.Miðvikudagur 2 maí KL: 19:00 Helgafell í Mosfellsbæ.

Mæting við Össur.

 Sameinast í bíla og ekið uppá bílastæðið við norðurenda fellsins.

. Gengið þar upp og niður í Skammadal og út með Helgafellinu til baka.

 Göngutími um 2 tímar. Hækkun um 290 metrar.

( Gengum þetta 4 konur einn laugardag auðveld uppganga) ..

…………………………………………………………………………………………

Sunnudagur 6. maí Hellisheiðarvirkjun - Bláfjöll

Hittumst við Össur kl. 10:00

Ekið upp í Bláfjöll og bílar skildir eftir. Ekið að Hellisheiðarvirkjun og

gengið að bílum. Þetta er 1 hlutinn af Reykjaveginum. LÖNG FERÐ

AÐ SÖGN BEGGU ER Á ÞESSARRI LEIÐ MIKILL SNJÓR OG VÆNTANLEGA

DRULLA. EF ÚTLIT VERÐUR FYRIR ÞAÐ ÞESSA HELGI ER HÆGT AÐ HAFA

TIL VARA HENGILSVÆÐIÐ - HENGIL-SKEGGI.

…………………………………………………………………….

..Miðvikudagurinn 9 maí Kl:19:00 Valar-Músarhellir

 Mæting við Fjarðarkaup

Sameinast í bíla og ekið uppað Kaldárseli.

Gengið þaðan áleiðis að Helgafelli beygt til hægri og

 gengið uppað Völunum sem eru myndarleg steintröll

efst á Valahnjúkum. Gengið niður norðanmegin og komið við í Valabóli(Músarhelli).

 Göngutími um 2 tímar.Hækkun um 250 metrar.

Lítið klifur þægileg ganga.

………………………………………………………………………………………..

Sunnudagur 13. maí Reykjanesviti -Hafnir

Hittumst við Fjarðarkaup kl. 10:00

Ekið að Höfnum, bílar skildir eftir og ekið að Reykjanesvita. Gengið til

baka í Hafnir. LÖNG FERÐ

…………………………………………….

Miðvikudagur 16 maí Kl:19:00

Gönguklúbburinn Göngugarpar átti 10 ára afmæli 12. maí s.l.

Af því tilefni höfum við afmælisgöngu.

Hittumst við Fjarðarkaup kl. 19:00. Göngum út í Gálgahraun. Förum þar góðan

hring og síðan á Súfistann í Hafnarfirði. Þar eigum við frátekið kl. 20:30. Mætum öll

og gleðjumst saman yfir frábærum árangri í heilan áratug. Nýtt fólk hjartanlega velkomið.

…………………………………………………………………………..

………………………………………………………………………………….

Sunnudagur 20. maí . Móskarðshnjúkar

Hittumst við Össur kl. 10:00

Okkar árlega ganga á Móskarðshnjúka

.Miðvikudagur 23 maí Kl:19:00 Undirhlíðar. Mæting við Fjarðarkaup

 Sameinast í bíla og ekið uppað Kaldárseli.

Gengið meðfram Undirhlíðum inná móts við malarnámuna

og sama leið til baka: Göngutími um tæpir 2 tímar.

Enginn hækkun………………………………………………………………………………….

Sunnudagur 27. maí

Hvítasunnuferð. Nánar auglýst síðar. Sjá forsíðu. Júlía heldur utan

um fjöldann og ferðatilhögun. Hafið samband við hana ef þig ætlið að fara. 

Sími 848-8170. Þeir sem ætla í Hvítasunnuferðina verða að greiða kr. 3,700,-

í staðfestingargjald inn á Guffa. Sjá forsíðu.

Miðvikudagur 30 maí Kl: 19:00.

Hádegishæð- Mýrarskyggnir- Rauðavatn.

Mæting við Össur. Ekið uppað Hádegismóum.

Gengið þaðan upp Lyngdal að Mýrarskyggni og til baka um

Trippadal og hringur um Rauðavatn að Hádegismóum.

Þægileg um 2ja tíma ganga hækkun óveruleg…………………………………………………………………….

Sunnudagur 3. júní Mávahlíðar - Lambafellsgjá

Hittumst við Fjarðarkaup kl. 10:00

Ekið framhjá bílastæðinu við Keili/Oddafell og gengið meðfram

Mávahlíðum og til baka í gegnum Lambafellsgjá.

2 ummæli

  1. Göngugarpar athugið. Ef veðrið er ekki upp á það besta, er samt hægt að mæta í göngu og þá breytum við bara. göngum t.d. góðan óveðurshring í Heiðmörk. Látum ekki veðrið stoppa okkur, alltaf hressandi að fá sér smá göngu.
    Dagga

    Ummæli eftir gongugarpar | 11. október 2010

  2. Í desember er reynt að hafa göngurnar frekar stuttar. Svona meira til að viðra sig. Svo er spennandi að fara einu sinni á kaffihús saman. Reynum að mæta sem flest. Það er ótrúlegt hvað maður fær mikla orku eftir göngu til að takast á við jólastússið.
    Dagga

    Ummæli eftir gongugarpar | 2. nóvember 2010

Lokað er fyrir ummæli.