Göngugarpar

Fyrir fólk á öllum aldri.

Síða göngugarpa

Velkomin á síðu Göngugarpa.

Við erum hópur fólks sem hefur gaman af útiveru í góðum félagskap.

Kíkið á dagskrána.  Allir velkomnir.

ATH.ATH. HVÍTASUNNAN.

BÚIÐ ER AÐ PANTA GISTINGU Í VESTMANNAEYJUM Á GISTIHEIMILINU ÁRNÝJU FYRIR AMK. 15-20 MANNS.

þAR SEM MIKIL AÐSÓKN ER AÐ GISTINGU Í EYJUM UM HVÍTASUNNUHELGINA VERÐUM VIÐ AÐ VERA SNÖGG AÐ ÁKVEÐA OKKUR. GISTING YFIR NÓTT KOSTAR 3,700 KR Í SVEFNPOKAPLÁSSI. HÆGT ER AÐ VERA 2 EÐA 3 NÆTUR. MATUR ER EINS OG VANALEGA SAMEIGINLEGUR, EN ELDHÚS ER Í HÚSINU. MATARKOSTNAÐUR VERÐUR CA. 5-6 ÞÚS PR. MANN. FARIÐ VERÐUR MEÐ HERJÓLFI Á FÖSTUDAG OG GENGIÐ Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG UNDIR LEIÐSÖGN BJARNA. VIÐ HÖFUM HÆÐ OG RIS ÚT AF FYRIR OKKUR Í GISTIHEIMILINU. FYLGIFISKAR SEM EKKI HAFA GAMAN AF AÐ GANGA GETA VEL KOMIÐ MEÐ, MARGT ER HÆGT AÐ BRALLA Í EYJUM.

VINSAMLEGAST LÁTIÐ JÚLÍU VITA NÚNA Í ÞESSARRI VIKU HVORT ÞIÐ ÆTLIÐ AÐ FARA. JÚLÍA ER MEÐ SÍMA 848-8170.

NAUÐSYNLEGT ER AÐ GREIÐA STAÐFESTINGARGJALD KR. 3,700 INN Á GUFFA Í ÞESSARRI VIKU. MUNIÐ AÐ LÁTA NAFN Í TILVÍSUN.

Guffi: 1101-05-762451 kt. 3006545179
. GOTT ER AÐ MINNA Á GUFFA - SJÓÐINN OKKAR- ÞAR SEM HANN STYRKIR OKKUR Í ALLAR SVONA FERÐIR. HÆGT ER AÐ LÁTA EITTHVAÐ AF HENDI RAKNA ÞEGAR VIÐ HITTUMST Á SUNNUDÖGUM. BAUKURINN GUFFI ER ÞÁ OFTAST MEÐ Í FÖR. ÞVÍ DUGLEGRI SEM VIÐ ERUM AÐ MUNA EFTIR KLIKNI Í GUFFA ÞVÍ AUÐVELDARA ER AÐ FARA Í SVONA LENGRI FERÐIR.

ÁKVEÐIÐ HEFUR VERIÐ AÐ HVER OG EINN GREIÐI BÍLSTJÓRUM KR. 500 UPP Í BENSÍNKOSTNAÐ ÞEGAR VIÐ SAMEINUMST Í BÍLA. VINSAMLEGA VIRÐIÐ ÞETTA OG HAFIÐ MEÐ YKKUR 500 KALL. ÞETTA ER ORÐIÐ BRÁÐNAUÐSYNLEGT ÞAR SEM ELDSNEYTI ER ORÐIÐ ÓHEYRILEGA DÝRT.

Kveðja  Göngugarpar.

Höfum opnað Facebook síðu undir leitarorðinu göngugarpar. Kíkið á og verið með í umræðum.

14. september 2007 kl. 14:10 | gongugarpar | Óflokkað | 1 ummæli

1 ummæli

  1. Í gær átti að fara einn hluta af Reykjaveginum. En sökum fannfergis á Djúpavatnsveginum þurftum við að finna okkur aðra leið. Lögðum við því við afleggjaran að Djúpavatni og gengum meðfram Sveifluhálsinum og lögðum svo á brattan og yfir hann eftir dágóða göngu. Það var mikið ævintýri að komast þarna yfir því snjórinn var slíkur. Sukkum við hvað eftir annað upp í klof. Eins og myndirnar sína rákumst við líka á tröllkarl og svo litla mús, sem helst vildi vera hjá okkur. Okkur langaði líka að taka hana heim.
    Við sáum í þessari ferð, að líklegast getum við ekki farið alla Reykjavegsgönguna svona að vetrarlagi. Næsta ganga gæti verið í lagi, þar sem hún er auðrötuð og auðvelt að koma bílum upp að Kaldárseli. Sú ganga hefst við afleggjarann að Djúpavatni. En við viljum leggja áherslu á það, að reynist veður válynd, munum við bara finna okkur aðra leið. Við munum ákveða það á bílaplaninu þar sem við hittumst. Á þetta við um allar göngur yfir veturinn. Svo það er um að gera að mæta og sjá til. Gangan í gær var ein af þessum göngum sem standa upp úr. Ævintýri bak við hvern stein.

    Ummæli eftir gongugarpar | 27. október 2008

Lokað er fyrir ummæli.